Edoxaban Krka

Segavarnarlyf | Verðflokkur: G | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Edoxaban

Markaðsleyfishafi: Krka, d.d., Novo mesto | Skráð: 1. júlí, 2025

Edoxaban Krka inniheldur virka efnið edoxaban og tilheyrir flokki lyfja sem nefnast segavarnarlyf. Lyfið stuðlar að því að koma í veg fyrir blóðtappamyndun með því að hindra virkni þáttar Xa, sem er mikilvægur þáttur við blóðstorknun. Edoxaban Krka er notað hjá fullorðnum til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa í heila (slags) og öðrum æðum líkamans hjá þeim sem hafa ákveðna tegund af óreglulegum hjartslætti sem nefnist „gáttatif sem ekki tengist hjartalokusjúkdómum“ og hafa að minnsta kosti einn áhættuþátt auk þess. Lyfið er líka notað til meðferðar við blóðtöppum í bláæðum í fótleggjum (segamyndun í djúplægum bláæðum) og í æðum í lungum (lungnasegarek), og til að hindra endurkomu blóðtappa í æðum í fótleggjum og/eða lungum.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
60 mg einu sinni á sólarhring, Edoxaban Krka má taka með eða án matar.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
3-4 klst

Verkunartími:
Um 7-10 dagar.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Aukin hætta er á blóðtappamyndun þegar töku lyfsins er hætt. Ekki hætta töku lyfsins nema í samráði við lækni.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ofskömmtun getur lengt blæðingartíma. Ef teknir eru stórir skammtar eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Án vandkvæða, en reglulegt eftirlit hjá lækni er nauðsynlegt.


Aukaverkanir

Algengasta aukaverkun lyfsins eru blóðnasir, blóðmiga og blóðleysi.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Blóðleysi, blóð í þvagi          
Blæðing          
Blæðing úr leggöngum          
Höfuðverkur, sundl          
Magaverkur, ógleði          
Marblettir eða blæðingar undir húð          
Útbrot, kláði          

Milliverkanir

Jónsmessurunni/jóhannesarjurt (jurtalyf sem notað er við þunglyndi) getur dregið úr virkni lyfsins. Vegna aukinnar blæðingarhættu á ekki að nota lyfið samliða með neinum öðrum segavarnarlyfjum

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með blæðingartilhneigingu
  • þú sért með háan blóðþrýsting
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú hafir nýlega fengið heilablæðingu

Meðganga:
Ekki má nota lyfið á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Annaðhvort verður ráðlagt að hætta brjóstagjöf eða hætta töku/hefja ekki notkun lyfsins.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegir skammtar.

Akstur:
Lyfið hefur engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.