Garamycin (afskráð mar. 2011)
Augnlyf | Verðflokkur: $medicine.getPriceCategory().name | Lyfseðilsskylt
Virkt innihaldsefni: Gentamícín
Markaðsleyfishafi: Schering-Plough | Skráð: 1. mars, 1977
Gentamícín er breiðvirkt sýklalyf í flokki amínóglýkósíða. Lyfið berst inn fyrir frumuvegg bakteríanna þar sem það binst ríbósómeiningum þess. Ekki er vitað með vissu hvað orsakar dauða bakteríanna. Þó er talið að lyfið hindri mikilvæga próteinframleiðslu bakteríunnar auk þess sem þýðing á DNA-kóda hennar verður röng. Ónæmi gegn lyfinu þróast yfirleitt hægt. Garamycin augndropar eru notaðir við augnsýkingum af völdum baktería sem eru næmar fyrir gentamícíni.
Notkun á lyfi
Lyfjaform:
Augndropar.
Venjulegar skammtastærðir:
Augndropar gefist í sýkt auga 6 sinnum á dag eða oftar.
Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Misjafn eftir ástandi sjúklings.
Verkunartími:
2-3 klst.
Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.
Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá. Nota skal lyfið innan 4ra vikna frá því að innri umbúðir eru opnaðar.
Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.
Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Notaðu lyfið eins lengi og læknir segir til um. Ef notkun hættir of snemma getur sýkingin náð sér aftur á strik, jafnvel þótt einkenni hennar hafi verið horfin.
Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef vart verður við einhver óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.
Langtímanotkun:
Garamycin augndropar eru nær eingöngu notaðir í skamman tíma við tilfallandi sýkingum í augum.
Aukaverkanir
Aukaverkun | Tíðni | Leitið til læknis vegna einkenna | Leitaðu strax til læknis | Hættu strax töku lyfs | |||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Algeng >1% | Sjaldgæf <1% | Ekki þekkt | Sem eru alvarleg | Í öllum tilvikum | |||
Erting og sviði í auga | ![]() |
![]() |
|||||
Rauð og bólgin augu | ![]() |
![]() |
Milliverkanir
Engar milliverkanir eru þekktar við þetta lyfjaform. Ef önnur staðbundin augnlyf eru notuð samtímis, þurfa að líða a.m.k. 5 mín. á milli ídreypinga.
Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á
Má ekki nota með
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Certican
- Dailiport
- Deferasirox Accord
- Everolimus WH
- Furix
- Furosemide Kalceks
- Hydrocortison med Terramycin og Polymyxin-B
- Impugan
- Maxitrol
- Modigraf
- Prograf
- Prograf (Lyfjaver)
- Rapamune
Getur haft áhrif á
- Aclasta
- Activelle
- Advagraf (Heilsa)
- Advagraf (Lyfjaver)
- Alendronat Bluefish
- Alendronat Teva
- Alvofen Express
- Alvofen Junior
- Arthrotec
- Arthrotec Forte
- Bonviva
- Botox
- Botox (Abacus Medicine)
- Cefotaxim Navamedic
- Cefuroxim Fresenius Kabi
- Cefuroxim Navamedic
- Celebra
- Celecoxib Actavis
- Celecoxib Medical
- CitraFleet
- CitraFleet (Heilsa)
- Cloxabix
- Dailiport
- Diclomex
- Dimax Rapid
- Dipentum
- Esomeprazol Actavis
- Esomeprazol Krka
- Esomeprazol Krka (Heilsa)
- Esomeprazole Jubilant
- Estring
- Estrofem 1 mg
- Estrofem 2 mg
- Estrogel
- Evorel Sequi
- Femanest
- Hjartamagnýl
- Iasibon
- Ibandronic acid Alvogen
- Ibandronic acid WH
- Ibetin
- Íbúfen
- Ibuprofen Zentiva
- Ibutrix
- ibuxin rapid
- Kliogest
- Lenzetto
- Maxitrol
- Modifenac
- Modigraf
- Mycofenolsýra Accord
- Myfenax
- Myfenax (Heilsa)
- Myfortic
- Mykofenolatmofetil Actavis
- Naproxen Viatris
- Naproxen-E Mylan
- Nexium
- Nexium (Heilsa)
- Nexium (Lyfjaver)
- Novofem
- Nurofen Apelsin (Heilsa)
- Nurofen Junior Appelsín
- Nurofen Junior Jarðarber
- Omeprazol Actavis
- Omeprazol Alvogen (áður Omeprazol ratiopharm)
- Omeprazol Medical Valley
- Ostacid
- Parapró
- Pariet
- PEDIPPI
- Picoprep
- Prograf
- Prograf (Lyfjaver)
- Qlaira
- Rabeprazol Actavis
- Rabeprazol Krka
- Rabeprazol Medical Valley
- Relifex
- Rewellfem
- Ryeqo
- Salazopyrin
- Salazopyrin EN
- Strefen
- Strefen (Heilsa)
- Strefen Apelsin (Heilsa)
- Strefen Honung & Citron
- Strefen Honung & Eukalyptus
- Strefen Orange Sukkerfri
- TNG-smyrsl
- Tobradex
- Treo
- Treo Citrus
- Treo Hindbær
- Trisekvens
- Vagidonna
- Vagifem
- Valablis
- Valaciclovir Actavis
- Valaciclovir Bluefish
- Valtrex
- Vistabel
- Vivelle Dot
- Xeomin
- Zavicefta
- Zinacef
- Zoledronic Acid Teva
Varúð
Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
- grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
- þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
- þú takir einhver önnur lyf
- þú notir augnlinsur
Meðganga:
Lyf af flokki amínóglýkósíða fara yfir fylgju og geta haft áhrif á fóstur.
Brjóstagjöf:
Lyfið berst í brjóstamjólk.
Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.
Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.
Akstur:
Eins og á við um önnur augnlyf getur notkun augndropa valdið tímabundnum sjóntruflunum.
Áfengi:
Áfengi hefur ekki áhrif á verkun lyfsins.
Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.
Annað:
Lyfið inniheldur rotvarnarefni og því ættu sjúklingar ekki að nota mjúkar snertilinsur á meðan meðferð stendur og harðar linsur með varúð.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.