Mirtazapin Sandoz

Geðdeyfðarlyf | Verðflokkur: G/0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Mirtazapín

Markaðsleyfishafi: Sandoz | Skráð: 1. apríl, 2025

Mirtazapin Sandoz er geðdeyfðarlyf. Mirtazapín, virka efni lyfsins, er efnafræðilega skylt geðdeyfðarlyfinu míanseríni en áhrif þessara tveggja lyfja á taugaboðefni í heila eru nokkuð ólík. Mirtazapín hefur áhrif á geðdeyfð og virkar jafnframt róandi. Mirtazapín hefur sambærileg áhrif og önnur geðdeyfðarlyf, það bætir skap og matarlyst, eykur líkamlega virkni og áhuga á daglegu lífi. Þessi áhrif koma aðeins fram hjá sjúklingum með geðdeyfð en sjást ekki ef heilbrigðir taka lyfið. Mirtazapín virkar auk þess róandi og hentar vel ef svefntruflanir fylgja geðdeyfð.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Töflur til inntöku.

Venjulegar skammtastærðir:
15-45 mg á dag, venjulega að kvöldi fyrir svefn, eða kvölds og morgna. Töflurnar gleypist heilar með vatnsglasi. Má ekki tyggja þær.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Um 1-2 vikur, full verkun næst á 2-4 vikum.

Verkunartími:
Ekki að fullu þekktur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Taktu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að taka lyfið eins og venjulega. Ekki taka tvo skammta í einu. Ef þú átt að taka skammtinn tvisvar á dag og gleymir að taka morgunskammt, taktu hann þá ásamt kvöldskammtinum. Ef þú gleymir hinsvegar að taka kvöldskammt skaltu ekki taka hann ásamt næsta morgunskammti. Slepptu honum og haltu meðferðinni áfram með venjulegum morgun- og kvöldskammti.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Sjúkdómseinkenni geta aftur komið fram þegar töku lyfsins hættir. Ekki hætta að taka lyfið nema í samráði við lækni. Ekki hætta töku lyfsins snögglega.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Ef of stór skammtur af lyfinu hefur verið tekinn, eða ef barn hefur í ógáti tekið inn lyfið skal hafa samband við lækni, sjúkrahús eða eitrunarmiðstöð (sími 543 2222).

Langtímanotkun:
Meðferð stendur venjulega í a.m.k. 6 mánuði.


Aukaverkanir

Aukin matarlyst og þyngdaraukning er mest áberandi á fyrstu vikum meðferðar, en síðan dregur úr þessari aukaverkun. Aðrar aukaverkanir eru mun sjaldgæfari.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Aukin matarlyst, þyngdaraukning          
Bjúgur          
Gula        
Hiti, slappleiki, lystarleysi og marblettir        
Höfuðverkur, svimi, þreyta          
Krampar        
Munnþurrkur          
Ógleði, uppköst, niðurgangur          
Skapgerðarbreytingar          
Svimi þegar staðið er upp          
Útbrot          
Svefndrungi, róandi áhrif          
Óeðlilegir draumar          
Rugl, kvíði, svefnleysi          
Svefnhöfgi, sundl, skjálfti          
Liðverkir, vöðvaverkir, bakverkir          
Sjálfsvígshugsanir og -hegðun      
Oflæti (sæluvíma)      

Milliverkanir

Lyfið getur aukið slævandi áhrif róandi lyfja.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með lágan blóðþrýsting
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú hafir fengið hjartaáfall eða sért með hjartasjúkdóm
  • þú takir einhver önnur lyf
  • þú sért með stíflu í þörmum

Meðganga:
Takmörkuð reynsla er af notkun lyfsins hjá þunguðum konum.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulegar skammtastærðir.

Akstur:
Lyfið getur valdið svima og skert viðbragðsflýti. Ekki aka bíl fyrr en reynsla er komin á það hvaða áhrif lyfið hefur.

Áfengi:
Ekki neyta áfengis meðan lyfið er tekið. Hreyfigeta skerðist og sljóvgandi áhrif lyfsins aukast ef áfengis er neytt samtímis lyfjatöku. Almennt er mælt gegn því að neyta áfengis samhliða meðferð með geðdeyfðarlyfjum.

Íþróttir:
Leyft við æfingar og í keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.