Testoviron Depot (afskráð apr. 2006)

óskráð | Verðflokkur: 0 | Lyfseðilsskylt

Virkt innihaldsefni: Testósterón

Markaðsleyfishafi: óskráð

Testósterón er karlhormón. Það myndast í mestu magni í eistum karla en líka í litlu magni í eggjastokkum kvenna og nýrnahettum hjá báðum kynjum. Hormónið hefur áhrif á líkamsbyggingu, kynfæri, fitudreifingu, efnaskipti og hárvöxt en hefur auk þess vefjauppbyggjandi verkun. Testósterón er gefið karlmönnum ef lítið eða ekkert myndast af því í líkamanum, t. d. vegna sjúkdóma eða erfðagalla. Í vissum tilfellum er testósterón gefið konum sem eru með illkynja æxli í kynfærum eða brjóstum. Testósterón hefur nær enga virkni ef það er tekið í töfluformi.


Notkun á lyfi

Lyfjaform:
Stungulyf í vöðva.

Venjulegar skammtastærðir:
Karlar: Til að koma kynþroska af stað og upphafsmeðferð við testósterónskorti: 250 mg á 2-3ja vikna fresti; viðhaldsmeðferð: 250 mg á 3ja-4ra vikna fresti. Konur, brjóstakrabbamein: 250 mg á 2ja vikna fresti.

Hversu langur tími líður uns verkun kemur fram:
Ekki að fullu þekkt.

Verkunartími:
2-5 vikur.

Þörf á að breyta mataræði meðan lyfið er tekið:
Engin.

Geymsla:
Geymist í lokuðum umbúðum við stofuhita þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Ef skammtur gleymist:
Notaðu lyfið um leið og þú manst eftir því. Ef stutt er til næsta skammts skaltu sleppa þeim sem gleymdist og halda áfram að nota lyfið eins og venjulega. Ekki nota tvo skammta í einu.

Hvernig á að hætta töku lyfsins:
Einkenni testósterónskorts koma aftur þegar notkun lyfsins lýkur. Ekki hætta notkun lyfsins nema í samráði við lækni. Krabbameinsmeðferð: Fylgið öllum fyrirmælum læknis.

Ef tekinn er of stór skammtur:
Stakir skammtar sem eru litlu stærri en venjulega ættu ekki að skapa vanda. Ef stórir skammtar eru teknir eða ef vart verður við óvenjuleg einkenni skal hafa samband við lækni.

Langtímanotkun:
Aukaverkanir eru tíðari þegar lyfið er notað í langan tíma.


Aukaverkanir

Aukaverkanir lyfsins stafa allar af almennum áhrifum karlhormóna, þær eru háðar skömmtum og meðferðarlengd.

Aukaverkun Tíðni Leitið til læknis vegna einkenna Leitaðu strax til læknis Hættu strax töku lyfs
Algeng >1% Sjaldgæf <1% Ekki þekkt Sem eru alvarleg Í öllum tilvikum    
Bjúgur          
Erting á stungustað          
Fækkun á sáðfrumum          
Gula          
Taugaveiklun, aukin líkamsþyngd, langvinn og tíð stinning          
Útbrot og mikill kláði          

Milliverkanir

Notkun andrógena (testósteróns) getur minnkað insúlínþörf hjá sykursjúkum.

Sjá öll lyf sem geta haft áhrif á

Má ekki nota með

Getur haft áhrif á


Varúð

Læknir sem ávísar lyfinu þarf að vita hvort
  • grunur leiki á um þungun eða að þú sért með barn á brjósti
  • þú sért með langvarandi lifrar- eða nýrnasjúkdóm
  • þú sért með mikla blóðfitu
  • þú sért með ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna
  • þú sért með sjúkdóm í blöðruhálskirtli
  • þú sért með sykursýki
  • þú takir einhver önnur lyf

Meðganga:
Lyfið getur aukið líkur á fósturskaða sé það notað á meðgöngu.

Brjóstagjöf:
Ekki er vitað hvort lyfið berst í brjóstamjólk.

Börn:
Lyfið er ekki ætlað börnum.

Eldra fólk:
Venjulega ekki notað. Aukin hætta er á stækkun blöðruhálskirtils hjá eldri karlmönnum.

Akstur:
Lyfið hefur ekki áhrif á aksturshæfni.

Áfengi:
Í litlum skömmtum hefur áfengi ekki áhrif á verkun lyfsins.

Íþróttir:
Bannað í og utan keppni.


Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um lyfið er að finna í SPC texta og í fylgiseðli lyfsins, sem má finna á heimasíðu Sérlyfjaskrá. Ef upplýsingar hér stangast á við þær upplýsingar ber að fara eftir SPC texta lyfsins og/eða fylgiseðli.